Fréttir

Stéttin sem heldur Íslandi gangandi – niðurstöður nýrrar Gallup könnunar

23 jún. 2025

Í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Sjúkraliðafélag Íslands í júní 2025 kom fram að 96% landsmanna hafa jákvætt viðhorf til starfa sjúkraliða og 98% telja starfið mikilvægt í heilbrigðisþjónustunni.

Sjúkraliðafélagið fagnar þessum niðurstöðum og lítur á þær sem skýra viðurkenningu á mikilvægi starfsins. „Við vitum hvað við leggjum af mörkum en það að almenningur sjái það líka skiptir máli.“

Í könnuninni kom jafnframt fram að margir tengja störf sjúkraliða fyrst og fremst við sjúkrahús og hjúkrunarheimili, en sífellt fleiri sjúkraliðar sinna nú líka lykilhlutverki í heimahjúkrun, geðþjónustu og annarri samfélagsþjónustu.

Sjúkraliðar eru fagfólk sem mætir fólki þar sem það er – með nálægð, reynslu og ábyrgð.

Til baka