Fréttir

Norræn ráðstefna um kynbundið ofbeldi

3 jún. 2025

Norrænar konur gegn ofbeldi er heiti ráðstefnu sem haldin var í Malmö dagana 23.-25. maí. Dagný Aradóttir Pind sótti ráðstefnuna fyrir hönd BSRB og flutti erindi í vinnustofu þar sem fjallað var um Kvennaárið 2025. BSRB er einn af aðstandendum Kvennaárs, ásamt yfir 50 samtökum launafólks, kvenna, hinsegin fólks og fatlaðs fólks. Fulltrúar frá Kvenréttindafélagi Íslands, Stígamótum og Kvennaathvarfinu fluttu einnig erindi á vinnustofunni.

agný Aradóttir Pind hjá BSRB, Drífa Snædal hjá Stígamótum, Linda Dröfn Gunnardóttir hjá Kvennaathvarfinu, Auður Önnu Magnúsdóttir hjá Kvenréttindafélagi Íslands

Kröfur Kvennaárs voru kynntar, en þær fjalla um:

  • Endurmat á virði kvennastarfa og jafnrétti á vinnumarkaði,
  • Ólaunaða vinnu kvenna
  • Baráttu gegn kynbundnu ofbeldi

Kvennaverkfallið 2023 var einnig rætt en mikill áhugi er á því víða um heim.

Breið samstaða einkennandi fyrir jafnréttisbaráttuna á Íslandi

Ein helsta sérstaða Íslands þegar kemur að baráttu fyrir jafnrétti er hversu breið samstaða hefur náðst meðal ólíkra mannréttindasamtaka. Þetta hefur skilað árangri, þó enn sé mikið verk að vinna. Launajafnrétti er ekki náð, kynferðisleg og kynbundin áreitni og ofbeldi er til staðar á vinnumarkaði og í samfélaginu og konur bera meginþungann af ólaunaðri vinnu.

Í stefnu BSRB er fjallað um öll þessi mál, og meðal helstu forgangsverkefna bandalagsins eru endurmat á virði kvennastarfa, að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og inngilding á vinnumarkaði.

Til baka