Ársskýrslu Svæðisdeildar höfuðborgarsvæðisins 2024
Svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins er stærsta svæðisdeild Sjúkraliðafélags Íslands og telur yfir 1.000 félagsmenn. Þessi öflugi fjöldi gerir deildina að mikilvægu samfélagi þar sem samstaða, framþróun og fagleg uppbygging stéttarinnar er í forgrunni. Á síðasta starfsári stóð deildin fyrir fjölda viðburða sem bæði voru fræðandi og skemmtilegir og leiddu til aukinnar samheldni og samkenndar meðal félagsmanna.
Markmið og hlutverk
Markmið og hlutverk deildar og forysta hennar byggja á 2. kafla laga Sjúkraliðafélags Íslands. Í meginatriðum felast þau í að:
- Standa vörð um hagsmuni félagsmanna, vernda réttindi þeirra og sporna gegn hvers kyns misrétti í launum og starfskjörum.
- Efla samstöðu félagsmanna og styrkja samheldni stéttarinnar, m.a. með útgáfustarfsemi, fræðslufundum, skemmtunum og annarri félagsstarfsemi.
- Stuðla að bættri menntun og hvetja félagsmenn til að viðhalda og auka hæfni sína.
- Upplýsa og þjálfa trúnaðarmenn félagsins.
- Gæta virðingar stéttarinnar og vera talsmaður hennar út á við.
- Efla samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir og opinbera starfsmenn.
- Taka vel á móti nýjum sjúkraliðum við brautskráningu og bjóða þá velkomna til starfa fyrir hönd félagsins.
- Minnast og heiðra EPN-daginn og sýna samstöðu á 1. maí, degi verkalýðsins.
Stjórn deildar
Að reglum er stjórnin skipuð formanni, fjórum meðstjórnendum og einum varamanni. Formaður er kjörinn sérstaklega til tveggja ára í senn og tveir stjórnarmenn kjörnir árlega. Stjórnarkjör fór fram á síðasta aðalfundi deildarinnar og er stjórnin nú skipuð eftirfarandi einstaklingum:
- Formaður: Hulda Birna Frímannsdóttir
- Meðstjórnendur: Lára María Valgerðardóttir, Magnús E. Smith, Kristbjörg Sóley Hauksdóttir og Kristbjörg Elín Oddsteinsdóttir.
Viðburðir og útskriftir
Eitt af því mikilvægasta í starfi Svæðisdeildar Höfuðborgarsvæðisins er að fagna þeim sem ljúka sjúkraliðanámi.
- Rósar- og lyklaafhending fyrir þá sem luku námi á árinu. Um vorið brautskráðust ? nemendur frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og 17 nemendur frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla. Um jólin útskrifuðust 24 sjúkraliðar frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og 9 frá Fjölbrautaskólanum í Ármúla.
- Fulltrúar deildarinnar veittu hverjum og einum fallega rós og upplýsingalykil með hagnýtum upplýsingum um störf sjúkraliða, auk þess að bjóða þá hjartanlega velkomna til starfa.




Fræðandi og skemmtilegir viðburðir
Stjórnin stóð fyrir margvíslegum viðburðum sem vöktu mikinn áhuga og þátttöku félagsmanna:
- Aðstoð við skattframtöl
- Opið hús var haldið fyrir félagsmenn þar sem veitt var fagleg ráðgjöf við framtalsgerð. Það ríkti góð stemning og gleði, og greinilegt var að margir kunnu að meta þessa þjónustu.
- Förðunarnámskeið með Anítu Arndal
- Snyrtifræðingurinn Aníta Arndal kom og kenndi fjölbreyttar förðunaraðferðir. Allir þátttakendur fengu gjafapoka og nutu léttra veitinga og notalegrar samveru.
- Baráttudagur verkalýðsins – 1. maí
- Fjölmargir félagsmenn tóku þátt í kröfugöngu og hátíðarhöldum. Magnús Einarsson Smith var fánaberi að þessu sinni, og almenn samstaða og gleði einkenndi daginn.
- Nemadagur
- Nemendum var boðið í heimsókn þar sem kynnt var starf félagsins og hlutverk sjúkraliða. Þessi dagur var sérstaklega hugsaður til að efla tengsl við verðandi félagsmenn og svara spurningum um starfið. Bjarney Kristrún Haraldsdóttir verkefnastjóri fræðslumála á skrifstofu félagsins og Lára María Valgerðardóttir varaformaður félagsins skipulögðu þennan viðburð í samstarfi við svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins.
Haustferðin 12. september
Hápunktur ársins var hin frábæra haustferð, sem var farin þann 12. september. Félagsmenn þurftu að skrá sig fyrirfram og ljóst að hópurinn var stór. Tvisvar þurfti að stækka rútu til flytja fjöldann, og var mætt við Olís í Norðlingaholti þar sem lagt var af stað stundvíslega kl. 12.00.
- Heimsókn á HSU
- Farið var í heimsókn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU), þar sem þátttakendum gafst tækifæri á að fræðast um starfsemina.
- Göngutúr um bæinn með Valdimar Bragasyni
- Valdimar leiddi göngu um nágrennið og sagði frá sögu og mannlífi svæðisins.
- Galleríheimsókn
- Hópurinn heimsótti galleríið hjá Ólöfu sjúkraliða, sem er bæði einstakt rými og skemmtilegt tækifæri til að kynnast fjölbreyttum hæfileikum sjúkraliða.
- Þriggja rétta máltíð á Hótel Selfossi
- Dagurinn endaði svo með veglegri máltíð á Hótel Selfossi þar sem þátttakendur nutu saman í mat og góðrar stemningar og happdætti sem sló svo sannarlega í gegn.
Þessi ferð sameinaði skemmtun, fróðleik og var einstakt tækifæri til að efla tengslanet sjúkraliða á höfuðborgarsvæðinu.
Starfsár Svæðisdeildar höfuðborgarsvæðisins hefur verið viðburðaríkt. Fjölbreytt verkefni deildarinnar, allt frá skattframtalsráðgjöf til förðunarnámskeiða og skipulagningar á viðburðum eins og rósar- og lyklaafhendingu, endurspegla þá sýn að efla bæði faglega og félagslega stöðu sjúkraliða. Það er mikilvægt að tryggja samhent átak stjórnar og félagsmanna sem eflt getur tengslanetið, skapað samstöðutilfinningu og gefið góðan byr í seglin fyrir komandi starfsár.
Svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins þakkar öllum félagsmönnum fyrir virka þátttöku og hlakkar til áframhaldandi samvinnu á næsta ári.