Töluverður munur á launaþróun milli markaða
18 jún. 2025
Fjallað er um launaþróun á almennum og opinberum vinnumarkaði og kjarasamninga sem gerðir hafa verið í yfirstandandi kjarasamningslotu í vorskýrslu Kjaratölfræðinefndar 2025 sem kynnt var nýlega. Í skýrslunni er einnig að finna umfjöllun um launastig, samsetningu launa og launadreifingu árið 2024 auk umfjöllunar um íslenskan vinnumarkað, þróun efnahagsmála og kaupmáttarþróun.
Töluverður munur á launaþróun milli markaða
Sundurliðuð gögn Kjaratölfræðinefndar um launaþróun liggja fyrir til janúar 2025 og er töluverður munur á þróun milli markaða frá upphafi samningalotunnar í febrúar 2024. Laun hækkuðu mest á almenna markaðnum þar sem tvær kjarasamningsbundnar hækkanir komu til framkvæmda en minna á opinberum markaði þar sem aðeins ein hækkun var á tímabilinu og samningum kennara var ólokið. Önnur hækkun á opinberum vinnumarkaði kom til framkvæmda í apríl 2025 og samningum kennara lauk í febrúar sem ekki endurspeglast í gögnum Kjaratölfræðinefndar að þessu sinni.

(vísitala janúar 2024 = 100)
Atvinnuástand gott og atvinnuþátttaka mikil
Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um:
- 2,7% árið 2023
- 2,8% árið 2024
sem er mun meira en kaupmáttur launa. Háir vextir og verðhækkanir hafa þrengt að mörgum heimilum en fjárhagsstaða heimilanna er heilt yfir sterk og vanskil lítil í sögulegu tilliti.
Dregið hefur úr spennu á vinnumarkaði og starfandi fólki fjölgar hægar en áður. Atvinnuástandið er áfram gott og atvinnuþátttaka mikil. Á síðustu áratugum er töluverð fylgni milli hagsveiflna og búferlaflutninga þannig að þegar hægist um í efnahagslífinu dregur úr flutningi fólks til landsins og eru vísbendingar um að svo sé einnig nú.
Barneignir hafa enn töluverð áhrif á atvinnuþátttöku kvenna
Munur á hlutfalli starfandi kvenna og karla er meiri meðal þeirra sem eru með ung börn á framfæri en í öðrum hópum. Þó dregið hafi úr þeim mun á undanförnum áratugum er enn mun meiri munur á atvinnuþátttöku kynjanna í þessum hópi en hjá þeim sem ekki hafa börn á framfæri.
Vorskýrslu Kjaratölfræðinefndar og fylgigögn má finna á vef kjaratölfræðinefndar.