Fréttir

Nýr kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga undirritaður

13 jún. 2025

Sjúkraliðafélag Íslands hefur nú náð samkomulagi við Samband íslenskra sveitarfélaga um nýjan kjarasamning. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2025 og markar mikilvægt skref í átt að bættum kjörum og skýrari starfsramma fyrir sjúkraliða hjá sveitarfélögunum.

Samningur við Samband íslenskra sveitarfélaga hefur loks verið undirritaður eftir langt og strangt ferli

Viðræðurnar hafa staðið yfir frá apríl 2024 og hafa verið bæði flóknar og krefjandi, ekki síst vegna þess að þessi samningur byggir á nýju starfsmatskerfi sem nú tekur gildi hjá sveitarfélögunum. Útfærsla samningsins hefur því krafist nákvæmrar yfirferðar og vandaðrar vinnu að öllum smáatriðum.

Áætlað er að samningurinn verði kynntur félagsmönnum síðar í júní, eftir að framkvæmdanefnd Starfsmats hefur fundað þann 24. júní. Að því loknu mun atkvæðagreiðsla fara fram meðal félagsmanna sem mun ljúka 8. júlí.

Við þökkum félagsmönnum fyrir þolinmæði og stuðning í gegnum þetta langa ferli.

Til baka