Ársskýrsla Suðurlandsdeildar 2024

Ágætu sjúkraliðar.

Síðasti aðalfundur var haldin 8. nóvember 2023 í Tryggvaskála á Selfossi. Rúmlega 30 höfðu skráð sig á fundinn.  Fundasstjóri var kosin Margrét Auður Óskarsdóttir. Formannskosning var þetta árið og gaf Helga S. Sveinsdóttir áfram kost á sér og komu enginn önnur framboð fram.  Breytingar urðu á stjórn þegar Margrét Auður og Kristín Laxdal Guðmundsdóttir gengu úr stjórn. Tillaga stjórnar var samþykkt að kjósa Guðnýju Karolínu Axelsdóttir og Dagnýju Ómarsdóttur. Kolbrún Á. Jónsdóttir gaf kost á sér áfram og fékk kostningu. Í kjörstjórn var áfram Dagný Ómarsdóttir og ný inn kom Jóhanna F. Sæmundsdóttir. Kristín L. Guðmundsdóttir hætti.

Stjórn Suðurlandsdeildar, Dagný Ómarsdóttir, Katrín Alexandra Helgudóttir, Dögg Jónsdóttir, Kolbrún Ásta Jónsdóttir,
Guðný Karólína Axelsdóttir og Helga Sigríður Sveinsdóttir

Á fulltrúarþingið SLFI var Helga S. Sveinsdóttir og Kolbrún Á. Jónsdóttir kosnar og Dögg Jónsdóttir til vara.  Aðeins hefur fækkað í deildinni milli ára en nú eru 149 sjúkraliðar starfandi af Suðurlandi. Skýrist þetta af fjölda sjúkraliða sem eru komnar á aldur og hættar störfum. Kosning í skemmtinefnd og halda utanum næsta aðalfund var bráðamóttakan tilnefnd og var það samþykkt. Í ferðanefnd fyrir 45 ára afmæli Suðurlandsdeildar var kosin Aldís Þ. Bjarnadóttir, Guðný K. Axelsdóttir og Margrét Auður Óskarsdóttir. Ýmsar vendingar hafa orðið á þessari ferð en nú er ákveðið að 24 sjúkraliðar fara til Berlínar vorið 2025.

Frá aðalfundi Suðurlandsdeildar SLFI. Verið að skála í freyðivíni fyrir Margréti Auði

Margrét Auður þakkar fyrir skemmtileg ár í stjórnum og félagsmálum deildarinnar en hún hefur starfað þar í nær 40 ár. Sérstakur gestur fundarins var Sandra B. Franks formaður SLFI. Helga færði fráfarandi stjórnarkonum rós og eftir fundinn var skálað í freyðivíni og Auði þökkuð störf í þágu deildar. Fræðsluerindi eftir fund var í höndum Sigurgeirs Ýmirs Sigurjónssonar hjúkrunarfræðings en hann fjallaði um Hinseigin heilbrigði.

Trúnaðarráðstefnan var haldi í október 2023, stór ráðstefna sem var haldin á Grand hótel í Reykjavík. Þetta er vettvangur til að kynnast og fá fræðslu, því trúnaðermenn eru lykilmenn til að ná til hinna almenna félagsmanns.

Evrópudagurinn 26. nóvember er hafður í hávegum og minna sjúkraliðar þá á sig.

Fsu útskrifaði 9 sjúkraliða haustið 2023 en engan á vorönn 2024. Það er gleðilegt að segja frá því að loks er fulltrúi SLFI partur af athöfninni, eins og var frá upphafi skólans, en þetta lá niðri á covid-tímanum.

Formaður sótti félagstjórnarfundi auk fulltrúa þingsins í maí. Stjórnarfundir voru regluleg uþb. fjórir, auk samskipta á netinu.

Frá 1. maí göngu 2024

1. maí var haldin hátíðlegur á Selfossi. Kröfuganga eftir Austurveginum og fundur á Hótel Selfossi. Kaffiveitingar í boði verkalýðsfélaganna á Suðurlandi, ræður og skemmtiatriði.

Stjórnin vill þakka fyrir þáttöku í fjáröflun deildarinnar með vorþrifum á tveimur orlofsíbúðum í Reykjavík.  Peningarnir fara inn á reikning deildarinnar og eru fyrir utan rekstur hennar. Þessi fjáröflun er því miður á höndum fárra sem rennur til allra. Ég vil því biðla til félagsmanna að taka þátt næsta vor.

Trúnaðarmenn eiga að vera augu og eyru félagsins og alltaf er hægt að leita til skrifstofunnar á Grensásveginum.  Ég þakka öllum sem hafa lagt til vinnu í þágu deildarinnar á starfsárinu.

Fyrir hönd stjórnar,

Helga S. Sveinsdóttir,
formaður Suðurlandsdeildar SLFI

Til baka