Ársskýrsla Suðurnesjadeildar 2024
Eingöngu voru haldnir tveir fundir á árinu 2024 hjá okkur í Suðurnesjadeild og frekar dræm mæting á þá báða, en með góðri samvinnu milli okkar sjúkraliða í deildinni ætti okkur að takast að rífa upp áhuga fyrir starfinu og fá hugmyndir um hvað við viljum fá út úr hverjum fundi fyrir sig, viljum við fræðslu eða gera eitthvað skemmtilegt saman.
Haustfundur var haldinn á Sjávarsetrinu í Sandgerði þar sem við fengum okkur þeirra frægu sjávarrétta súpu og heimabakaða brauð. Þá kom Berglind miðill til okkar og spáði fyrir okkur og held ég að allir hafi skemmt sér vel og verið ánægð með spádóminn.
Fyrir ársfundinn þetta árið var ákveðið að sleppa fræðslu og hafa bara gaman og spjalla. Fundurinn var haldinn á Sjávarsetrinu eins og haustfundurinn, bæði af því að vel er tekið á móti okkur og svo er maturinn þar einstaklega góður og þjónustan frábær. Við fengum Brynjar Loga trúbador til að koma og syngja fyrir okkur nokkur lög sem reif upp stemninguna.
Fimm sjúkraliðar útskrifuðust frá FS í júní og einn sjúkraliði útskrifaðist í desember, formaður færði þeim rósir og árnaðaróskir fyrir hönd deildarinnar.


Í stjórn sjúkraliðafélagsins sitja Steinunn Bára Þorgilsdóttir, formaður , Matthildur Ólöf Guðmundsdóttir, varaformaður, Guðbjörg Ingibergsdóttir gjaldkeri, Steinunn Dagný Ingvarsdóttir, ritari og Sigrún Stefánsdóttir, varamaður í stjórn.
Steinunn Bára og Matthildur Ólöf og Steinunn Dagný fóru á 33. fulltrúaþing 16. maí og svo var trúnaðarmannaráðsfundur 20. september sem Steinunn Bára og Matthildur Ólöf mættu á.
Stjórn deildarinnar hittist sex sinnum yfir árið annað hvort á staðfundi eða í gegnum netið, að auki sótti formaður fundi með félagstjórninni bæði á Teams og staðfundi þar sem formenn deildanna hittast og bera saman bækur sínar.
Áætlun stjórnarinnar er að halda fleiri fundi þar sem sjúkraliðar af Suðurnesjum hittast, spjalla og bera saman bækur sínar og læra kannski eitthvað í leiðinni.
Fyrir hönd stjórnar Suðurnesjadeildar,
Steinunn Bára Þorgilsdóttir