Ársskýrsla Austurlandsdeildar 2024
Stjórnin hefur fundað fimm sinnum á þessu tímabili. Aðalvinnan hefur falist í því að undirbúa vor- og haustfundi, auk þess sem við leituðum að nýjum aðilum til að koma inn í stjórn. Varðandi námskeiðshalds þá varð sú breyting að í stað þess að Austurbrú sæi að miklu leyti um skipulag námskeiða þá voru þau námskeið sem í boði voru haldin í samstarfi við HSA. Þó að ágætlega hafi gengið fyrir stjórnina að hittast þá hafa vegalengdir vissulega áhrif á tíðni funda. Þessi hópur hefur náð vel saman og þó við höfum varla þekkst fyrr en á fyrsta fundi hefur samstarfið verið mjög gott.

Vorfundurinn var að þessu sinni haldinn á Egilsstöðum og var farið í SPA, auk þess sem Svava Hlín leiddi slökun og hugleiðslu. Mætingin var mjög góð en þáttakendur voru 31 og á meðan fundi stóð gæddum við okkur veitingum. Á fundinum óskuðu fráfarandi stjórnarmenn eftir því að hætta stjórnarstörfum að loknum haustfundi og var óskað eftir áhugasömum frambjóðendum frá Egilsstöðum, en reglur félagsins segja að stjórnarmenn skuli ekki alltaf koma frá sama svæði.

Haustfundurinn var haldinn á Randulfssjóhúsi 24. október 2024. Á haustfundi var lagt til af fráfarandi stjórn að inn í stjórnina kæmu Þorbjörg Sigurbjörnsdóttir, Gunnþórunn Heidenreich og Soffía Benjamínsdóttir í stað þeirra Svövu Hlínar, Guðrúnar Dúnu og Guðrúnar Tinnu. Ester Rósa og Júlía Þorbjörg sitja áfram í stjórn. Borin var upp tillaga um skipan nýrrar stjórnar og var hún samþykkt einróma og mun Þorbjörg gegna starfi formanns.

Á haustfundi var boðið upp á veitingar, kaffi, brauðrétt og köku. Til fundar voru skráðir 21 þátttakandi en sökum slæms veðurs komust ekki allir á fundinn. Helga Valbjörnsdóttir fótaaðgerðarfræðingur var með fræðsluerindi um fótaumhirðu og hvað þarf að hafa í huga því tengdu. Erindið var mjög fræðandi og þökkum við Helgu kærlega fyrir.

Útskrift nýrra sjúkraliða frá Verkmenntaskóla Austurlands fór fram í Eskifjarðarkirkju 25. maí 2024 og voru að þessu sinni útskrifaðir fimm sjúkraliðar og var þeim venju samkvæmt færð rós frá Sjúkraliðafélaginu, auk þess sem þeim var afhentur Sjúkraliðalykillinn. Einnig fengu þeir í hendurnar helstu upplýsingar sem gott er fyrir nýútskrifaða sjúkraliða að hafa við hendina.
Að lokum þakka fráfarandi stjórnarmenn fyrir sig og óska um leið nýrri stjórn alls hins besta.