Reglur Svæðisdeilda Sjúkraliðafélags Íslands
1.gr.: Heiti deildar og starfsvettvangur
Innan Sjúkraliðafélags Íslands eru starfandi sjálfstæðar svæðisdeildir sem skiptast að meginreglu eftir heilbrigðisumdæmum. Hver svæðisdeild kýs sér stjórn og fer að lögum félagsins og reglum svæðisdeilda. Starfsvettvangur deildar og verkefni er að þjónusta alla þá sem rétt hafa til að bera starfsheitið sjúkraliði og búa og/eða starfa á starfssvæði viðkomandi deildar.
Lögheimili deildanna og varnarþing er í Reykjavík. Félagssvæði Sjúkraliðafélags Íslands er allt landið. Nöfn og starfssvæði deildanna eru:
- Svæðisdeild Höfuðborgarsvæðisins.
- Svæðisdeild Suðurnesja.
- Svæðisdeild Vesturlands
- Svæðisdeild Vestfjarða.
- Svæðisdeild Norðurlands vestra – frá og með Brú í Hrútafirði að Siglufirði.
- Svæðisdeild Norðurlands eystra – frá og með Siglufirði að og með Langanesi.
- Svæðisdeild Austurlands.
- Svæðisdeild Suðurlands að Vestmannaeyjum frátöldum.
- Svæðisdeild Vestmannaeyja.
2. gr.: Réttur til aðildar að deild
Félagsmenn eru allir félagsmenn Sjúkraliðafélags Íslands sem búsettir eru á félagssvæði deildarinnar.
3. gr.: Lög deildanna
Lög Sjúkraliðafélags Íslands eru lög deilda og félagsmanna eftir því sem við á.
4. gr.: Markmið og hlutverk deildar
Hlutverk deilda og markmið eru þau sem kveðið er á um í 2. kafla laga Sjúkraliðafélags Íslands og ber forystu hennar að vinna að framgangi þeirra stefnumiða á sínum starfsvettvangi. Með því að:
- standa vörð um hagsmuni félagsmanna, vernda réttindi þeirra og beita sér gegn hvers konar misrétti í launagreiðslum og starfskjörum.
- vinna að samstöðu félagsmanna og efla samheldni stéttarinnar m.a. með útgáfustarfsemi, fræðslufundum, skemmtunum og annarri félagsstarfsemi.
- hvetja félagsmenn til að viðhalda hæfni sinni, auka þekkingu sína og stuðla að aukinni og bættri menntun félagsmanna.
- upplýsa og þjálfa trúnaðarmenn félagsins, og tryggja aðgengilega nýliðafræðslu fyrir nýja trúnaðarmenn; æta virðingar stéttarinnar og vera málsvari hennar.
- efla samvinnu og samstarf þeirra sem starfa við heilbrigðisþjónustu svo og annarra opinberra starfsmanna.
- að við brautskráningu sjúkraliðanema, sé þeim afhentar heillaóskir félagsins og þeir boðnir velkomnir til starfa, tryggja virka samvinnu við sjúkraliðanema í náminu svo sem efna til nemadag
- Halda í heiðri EPN daginn og sýna virka samstöðu á degi verkalýðsins 1. maí.
5. gr.: Stjórnir deilda
Stjórnir deildanna skipa: formaður, fjórir meðstjórnendur sem skipta með sér verkum, og einn til vara og skal kjörin á aðalfundi til tveggja ára. Endurkjör stjórnarmanna er heimilt. Kosning stjórnar skal fara fram árlega og kosnir tveir stjórnarmenn hverju sinni.
Formaður skal kosinn sérstaklega.
Einungis félagsmenn með fulla aðild að félaginu, sem ekki hafa gerst brotlegir við siðareglur félagsins, eru kjörgengir í stjórn.
6. gr.: Formannskjör deilda
Kjörstjórn skal auglýsa eftir frambjóðendum til formannskjörs á viðurkenndum fjölmiðli eigi síðar en 1. september eða 4 vikum fyrir aðalfund. Frambjóðendur skulu senda skriflega tilkynningu um framboð sitt til kjörstjórnar fyrir 4 vikur fyrir aðalfund.
Láti formaður af embætti áður en kjörtímabili lýkur tekur stjórn deildar ákvörðun um lausn málsins, þar til nýr formaður er kosinn. Kjörstjórn skal tryggja að kosning formanns fari fram á félagsfundi eða aðalfundi innan þriggja mánaða.
7. gr.: Störf stjórnar
Stjórn deildar er tengiliður milli félaga deildarinnar og félagsstjórnar Sjúkraliðafélags Íslands. Formenn deildanna eru sjálfkjörnir í félagsstjórn Sjúkraliðafélags Íslands.
Formenn boða stjórnarfundi og aðra fundi deilda. Að loknu stjórnarkjöri skal formaður boða til stjórnarfundar við fyrstu hentugleika. Á fundinum skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórnir deilda geta skipað nefndir og starfshópa til að vinna að einstökum málefnum fyrir viðkomandi deild, félagið og félagsmenn.
Stjórn deildar er tengiliður milli félaga deildarinnar og félagsstjórnar Sjúkraliðafélags Íslands. Formenn deildanna eru sjálfkjörnir fulltrúar svæðisdeilda í félagsstjórn Sjúkraliðafélags Íslands, í samræmi við 19. gr. laga félagsins.
Formenn boða stjórnarfundi og aðra fundi deilda. Eftir stjórnarkjör skal formaður kalla saman stjórnarfund eins fljótt og verða má til að skipta með sér verkum innan stjórnar, og tryggja að hver stjórnarmaður hafi skýrt skilgreind hlutverk og ábyrgð.
8. gr.: Fjármál
Stjórn deildar skal gera fjárhagsáætlun og leggja fyrir aðalfund til samþykktar. Samþykkt fjárhagsáætlun, ásamt samþykktum reikningum og fylgiskjölum fyrra árs skal senda til skrifstofu félagsins fyrir 1. febrúar.
Við gerð fjárhagsáætlunar skulu eftirtaldir útgjaldaliðir áætlaðir/færðir sérstaklega:
- vegna aðal og félagsfunda
- vegna stjórnarfunda
- Ferðakostnaður
- Annar kostnaður:
- gjafir vegna útskrifta og annara tækifæra
- sérstakir viðburðir
Fjármunir sem einstakar deildir afla með sérgjöldum, söfnun eða á annan hátt skal ekki færa sem tekjur í reikninga deildarinnar heldur bókaðir sérstaklega og nýttir í samræmi við tilgang þeirra.
9. gr.: Aðalfundir deilda
Aðalfundir deilda skulu haldnir árlega á tímabilinu september – desember. Skýrslur deildanna skal senda félagsstjórn fyrir 1. febrúar ásamt fjárhagsáætlun og fjárbeiðni, auk tillagna og greinargerða sem leggja á fyrir fulltrúaþing eða félagsstjórn.
Til aðalfundar skal boða með a.m.k. 1 vikna fyrirvara. Fundurinn skal auglýstur í fjölmiðlum og/eða stafrænum miðlum félagsins til að tryggja breiða dreifingu til félagsmanna. Þess skal getið í fundarboði þegar formannskjör er.
Dagskrá aðalfundar:
- Kosning fundarstjóra.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi deildarinnar.
- Rekstur síðasta árs og fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
- Kosning formanns til tveggja ára.
- Kosning stjórnar.
- Kosning kjörnefnd og uppstillingarnefndar.
- Kosning fulltrúa deildarinnar til setu á fulltrúaþingi Sjúkraliðafélags Íslands samkvæmt ákvæðum 15. gr. laga félagsins.
- Önnur mál.
10. gr.: Fundir deilda
Fundi skal halda svo oft sem þurfa þykir. Fundi skal boða með minnst þriggja sólarhringa fyrirvara með tryggilegum hætti.
Stjórn deildar er skylt að boða til fundar ef fimmtungur félagsmanna krefst þess og tilgreinir fundarefni.
11. gr.: Kjörnefnd
Skipa skal kjörnefnd með þremur fulltrúum og einum til vara til tveggja ára. Hlutverk hennar er að sjá um undirbúning atkvæðagreiðslu um kjör formanns deildarinnar samkvæmt 6. gr. og umsjón á kjöri trúnaðarmanna.
Kjörnefnd úrskurðar um úrslit í atkvæðagreiðslum og kosningum, um vafaatkvæði og önnur ágreiningsatriði sem upp koma í atkvæðagreiðslum sem hún annast.
12. gr.: Uppstillingarnefnd
Uppstillingarnefnd skipuð þremur félagsmönnum og einum til vara, skal kosin á aðalfundi til tveggja ára. Hlutverk nefndarinnar er að gera tillögu um félaga í stjórn, nefndir og fulltrúa deildarinnar á fulltrúaþing félagsins.
13. gr.: Trúnaðarmenn
Stjórn svæðisdeildar sér um að trúnaðarmaður sé á hverjum vinnustað. Kjósa skal trúnaðarmann fyrir hvern vinnustað sem hefur rétt til að hafa trúnaðarmann. Strax að kosningu lokinni skal tilkynna til skrifstofu Sjúkraliðafélags Íslands.
14. gr.: Sé deild lögð niður
Komi til þess að deild leggist af skulu fjármunir sem í eigu hennar eru ganga til Sjúkraliðafélags Íslands.
15. gr.: Breyting á reglum
Reglum má aðeins breyta á fulltrúaþingi. Tillögur til breytinga á þessum reglum skulu hafa borist stjórn Sjúkraliðafélags Íslands eigi síðar en sex vikum fyrir fulltrúaþing. Breytingar á reglunum öðlast ekki gildi fyrr en þær hafa hlotið staðfestingu fulltrúaþings Sjúkraliðafélags Íslands, að fenginni umsögn laganefndar félagsins
Reglur svæðisdeilda lagðar fram til samþykktar á fulltrúaþingi
Fulltrúaþing 14. og 15. maí 2004 og samþykktar þannig breyttar.
Fulltrúaþing 31. maí 2007 og samþykktar þannig breyttar.
Fulltrúaþing 10. maí 2012 og samþykktar þannig breyttar.
Fulltrúaþing 12. maí 2017 og samþykktar þannig breyttar.
Fulltrúaþing 18. maí 2021 og samþykktar þannig breyttar.
Fulltrúaþing 29. apríl 2025 og samþykktar þannig breyttar.