Fréttir

63. föstudagspistill formanns

8 des. 2023

Þessi vinnuvika hófst með skemmtilegri heimsókn formanna Læknafélagsins, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og Félagi ljósmæðra hingað til okkar á skrifstofu Sjúkraliðafélagsins. Við vorum fljótar að átta okkur á að framhald yrði á samtali okkar, þannig ákveðið var að hittast reglulega til að ræða sameiginleg málefni þessara stóru heilbrigðisstétta. Það er margt sem mælir með að við stillum betur saman strengi. Heilbrigðisstarfsfólk er einn fjölmennasti hópur opinberra starfsmanna og Landspítalinn jafnframt stærsti vinnustaður landsins.

Steinunn Þórðardóttir, form. LÍ, Sandra B. Franks, form. SLFÍ, Unnur B. Friðriksdóttir, form. Ljósmæðrafélags Íslands
og Guðbjörg Pálsdóttir, form. Fíh.

Nú styttist í að sett verði fram ný 5 ára fjármálaáætlun stjórnvalda þar sem stóru línurnar í ríkisfjármálunum eru lagðar. Þá eru aðeins um 18 mánuðir til alþingiskosninga og því þurfum við undirbúa það að heilbrigðismálin verði að stóru kosningamáli. Við sem störfum í heilbrigðiskerfinu vitum að auka þarf framlag til heilbrigðismála og sníða kerfið að þörfum notenda. Lykilþáttur í þeirri vegferð er að tryggja mönnun og að rétt þjónusta sé veitt á réttum stað.  

Ítrekað hefur verið á það bent að núverandi ástand gengur ekki lengur. Vissulega er vandinn margþættur. Stundum vantar starfsfólk, stundum vantar fjármagn, stundum vantar betra vinnuumhverfi og tæki, stundum vantar betri stjórnun og yfirsýn og stundum vantar að hlusta betur á starfsfólk og sjúklinga. Stundum vantar þetta allt saman.

Í vikunni fundaði ég svo með starfsgreinaráði heilbrigðis-, félags- og uppeldisgreina en þar eiga sæti fulltrúar frá stjórnvöldum, BSRB, ASÍ, KÍ og félagi íslenskra framhaldsskóla. Verkefni ráðsins er meðal annars að skilgreina þarfir fyrir kunnáttu og hæfni sem námsbrautalýsingar fyrir viðkomandi starfsgreinar byggjast á og eru hluti af aðalnámskrá framhaldsskóla. Þetta var hressandi fundur þar sem farið var yfir helstu verkefnin framundan.

Þá hefur skapast sú venja að funda mánaðarlega með félagsstjórninni okkar og hittist hópurinn að þessu sinni á teams. Þar var rætt um félagsstarf svæðisdeildanna, aðalfundina þeirra, orlofsmál, stefnumótun og framtíðarsýn félagsins. Það er alltaf jafn upplífgandi að hitta þessa öflugu og ráðagóðu sjúkraliða, enda sinna þeir kjarnastarfi félagsins og eru ætið með puttann á púlsinum í þeim málum sem upp koma hverju sinni.

Félagsstjórn Sjúkraliðafélagsins fundaði í vikunni

Svo er það mál málanna, því kröfugerð og áherslur sjúkraliða í næstu kjaraviðræðum er í sífelldri vinnslu. Í vikunni var engin undantekning á því. Í samtölum okkar við sjúkraliða og önnur stéttarfélög virðist þjóðarsátt vera eina leiðin að þessu sinni til að tryggja kaupmátt launa. Við sjúkraliðar viljum vissulega að kaupmátturinn sé tryggður, en við viljum líka leiðréttingu á launum kvenna á þessum kynskipta vinnumarkaði og breytingar á vaktahvatanum. Um 90% sjúkraliða eru í vaktavinnu og því liggur þetta verulega þung á stéttinni. Eins og staðan er nú er engin sátt um útfærsluna á þessum hvata og því er mikilvægt að ná samkomulagi um aðra virkni eða jafnvel fella hann inn í grunnlaunin. Allavega er ljóst að eitthvað þarf að gera með hvatann svo félagsfólk okkar og stjórnendur stofnana séu ekki í endalausu uppnámi vegna hans.

Fjölmennt var á velheppnuðum jólafundi lífeyrisdeildar

Í vikunni hélt lífeyrisdeild sjúkraliða fjölmennan jólafund í félagssalnum okkar. Þar flutti Valgerður Gísladóttir sjúkraliði hugvekju og Hjördís Geirsdóttir sjúkraliði kom með gítarinn sinn. Annars hefur lífeyrisdeildin boðið til reglubundinna samverustunda á árinu, þar sem sjúkraliðar mæta með handavinnu, ræða málin og hafa gaman saman. Ég hvet ykkur sem hafið áhuga að hitta gömlu vinnufélagana, já eða aðra sjúkraliða sem lagt hafa niður störf, að mæta á handavinnufundi deildarinnar. En þeir eru auglýstir á facebook síðunni þeirra.  

Góða helgi!

Til baka