Fréttir

Námsframboð Félagsmálaskóla alþýðu haustið 2004

3 sep. 2004

 

 

Námsframboð haustið 2004

 

Fjölþjóðleg menning á vinnustað                     Tími: 2. nóv. kl. 13 17

Leiðbeinendur: Maríanna Traustadóttir, Þórunn Sveinbjörnsdóttir, Anh-Dao Tran og Halldór Grönvold

Íslenskur vinnumarkaður er fjölþjóðlegur og með opnun vinnumarkaðar má reikna með að erlendum starfsmönnum fjölgi enn frekar. Fjallað verður um nokkur grunnhugtök sem tengjast fjölþjóðlegri menningu á vinnustað eins og fjölmenning, fordómar, mismunun, einsleitni og margleitni. Hvaða vandamál koma upp á íslenskum vinnustöðum og hvað veldur því að fordómar fá að þrífast í íslensku samfélagi.

Markmið:

·     Að fræðast um menningarmun og gildismat sem hefur áhrif á skoðanir og viðbrögð fólks

·     Að auka skilning á eigin menningu og veruleika og tengja við reynslu og veruleika annarra samstarfsmanna

Námskeiðið er ætlað stjórnarmönnum, starfsfólki og öðrum talsmönnum

Verð: 3.000 kr.                                          Námskeiðið er í Reykjavík

 

Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja                    

Tími: 25. nóv. kl. 13 17         

Leiðbeinendur: Halldór Grönvold, Ari Edwald og Árni Magnússon                   

Fyrirtæki bera ábyrgð gagnvart hluthöfum, starfsfólki, viðskiptavinum, umhverfinu og samfélaginu. Fyrirtæki gera kröfur til samfélagsins og það skapar aðstæður svo þau fái að dafna með því að stuðla að stöðugleika í verðlagi, á vinnumarkaði, umhverfi og löggjöf. Það verður að ríkja jafnvægi í samfélaginu. Hvaða kröfur eru gerðar til fyrirtækja í dag? Mikilvægt er að sátt ríki um það á vinnumarkaðinum. Lög og reglur Evrópusambandsins varðandi samfélagslega ábyrgð fyrirtækja.

Markmið:

·     Að skilja gagnvart hverjum fyrirtæki bera ábyrgð

·     Að móta afstöðu til þess hvaða kröfur hægt sé að gera til fyrirtækja          

Námskeiði er ætlað stjórnarmönnum og starfsfólki

Verð: 3.000 kr.                                          Námskeiðið er í Reykjavík

 

Fundarritun                                                       Tími: 5. okt. kl. 9 16

Leiðbeinandi: Arnar Guðmundsson

Farið er í gegnum helstu atriði góðra fundargerða og hvert verksvið fundarritara er. Góður undirbúningur. Hvað eru aðalatriði og aukaatriði og hvað verður að koma fram í fundargerð. Hvernig hægt er að staðla fundarritun og auðvelda þar með ritunina. Hvað þarf að hafa í huga þegar minnisblöð eru skrifuð og til hvers eru þau.

Markmið

·     Að auka færni í að skrifa hnitmiðaða fundargerð

·     Að þekkja helstu atriði góðra fundargerða

Námskeiðið er ætlað stjórnarmönnum, starfsfólki og öðrum talsmönnum

Verð: 4.600 kr.                                          Námskeiðið er í Reykjavík

 

Velferðarkerfi verkalýðshreyfingarinnar           

Tími: 11. nóv. kl. 13 17

Leiðbeinendur: Stefán Ólafsson, Gylfi Arnbjörnsson, Ari Edwald og Pétur Blöndal

Sjúkrasjóðir, orlofssjóðir, lífeyrissjóðir og fræðslusjóðir.

Kemur starf þeirra út eins og tilgangurinn var hugsaður. Hafa breytingar í samfélaginu áhrif á starf sjóðanna? Eru sjóðirnir besta leiðin og eru þeir að skila árangri? Hvaða áhrif hafa ákvarðanir sem teknar eru af hinu opinbera á velferðarkerfi verkalýðshreyfingarinnar? Ef jafnvægið í velferðarmálum raskast verður einhver annar að taka þau á sig?

Hvernig virka sjóðir stéttarfélaga innan samfélagsins og á hagkerfið. 

Markmið:

·     Að dýpka skilning á starfi og hlutverki sjóðanna

·     Að skilja stöðu og hlutverk sjóðanna í tengslum við samfélagið

Námskeiðið er ætlað stjórnarmönnum og starfsfólki

Verð: 3.000 kr.                                          Námskeiðið er í Reykjavík

 

Virk þátttaka í félagsstörfum                                  Tími: 8. 10. nóv. kl. 9 17

Leiðbeinendur: Svanur Kristjánsson, Halldór Grönvold og  Ólafur Darri Andrason

Fjallað er um hugmyndafræði verkalýðshreyfingarinnar, lýðræðisleg vinnubrögð og hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu. Farið verður í helstu einkenni á íslenskum vinnumarkaði þ.m.t. ‘tvískiptingu vinnumarkaðarins’. Þá verður gerð grein fyrir skipulagi á íslenskum vinnumarkaði, samtökum launafólks og atvinnurekenda. Einnig verður samskiptum á vinnumarkaði gerð skil og hvernig þau hafa þróast. Hvernig geta stéttarfélög nýtt sér hagfræðina í baráttu sinni fyrir kaupi, kjörum og réttindum.

Markmið:

·     Að efla skilning á mikilvægi stéttarfélaga fyrir samfélagið

·     Að virkja áhuga þátttakenda á störfum stéttarfélaga

Námskeiðið er ætlað stjórnarmönnum, starfsfólki og trúnaðarmönnum

Verð: 6.800 kr.                                          Námskeiðið er í Reykjavík

 

Fjárfestingarstefna og aðferðir lífeyrissjóða       

Tími: Dagsetning ákveðin síðar  kl. 9 16

Leiðbeinendur: Sigurður B. Stefánsson og Gunnar Baldvinsson      

Mismunandi fjárfestingaraðferðir, hver er munurinn á þeim. Skoðun á ólíkum ávöxtunarleiðum. Hvernig er fjárfestingarstefna uppbyggð? Skilgreining á hugtökum og mat á fyrirtækjum. Fyrirlestrar verða um horfur á fjármálamarkaði á næstu misserum.

Markmið:

·     Að efla þekkingu á ávöxtunarleiðum, fjárfestingarstefnu og -aðferðum

·     Að auka hæfni til að móta fjárfestingarstefnu

Námskeiðið er ætlað stjórnarmönnum og fulltrúum stéttarfélaga í stjórnum lífeyrissjóða

Verð: 7.200 kr.                                          Námskeiðið er í Reykjavík

 

 

 

 

                            

Tími: 28. og 29. sept. kl. 9 16

Leiðbeinandi: Haukur Harðarson

Fjallað verður um starf og stöðu trúnaðarmannsins samkvæmt lögum og kjarasamningum. Hvert er verksvið trúnaðarmannsins og hverju á hann ekki að sinna. Hvert er hlutverk trúnaðarmannsins gagnvart stéttarfélagi og starfsmönnum.  Hverjar eru væntingar starfsmanna, hvaða ágreiningsefni geta komið upp og hvernig er best að taka á þeim. Mikilvægur þáttur í starfi trúnaðarmannsins er að taka á umkvörtunum, rannsaka mál og finna lausn á þeim vandamálum sem koma upp. Á námskeiðinu fá trúnaðarmenn markvissa þjálfun í að taka á umkvörtunum.

Markmið:

·     Að þekkja ábyrgð trúnaðarmannsins

·     Að geta komist að niðurstöðu og leyst úr ágreiningsefnum

Námskeiðið er ætlað trúnaðarmönnum sem eru nýir í starfi eða þeim sem hafa ekki sótt trúnaðarmannanámskeið.

Verð: 8.400 kr.                                          Námskeiðið er í Reykjavík

 

Enska – orðaforði vinnumarkaðarins                

Tími: 6. – 7. des.  kl. 9   16

Leiðbeinandi: Caroline Nicholson

Orðaforði og hugtök vinnumarkaðarins og efnahagsmála þjálfaður.

Setningaruppbygging, starfsetning, helstu málfræðireglur og málvillur.

Markmið:

·     Að efla hæfni til þátttöku á fundum og ráðstefnum þar sem enska er notuð

·     Að auka orðaforða og hæfni til að tjá sig á ensku

Námskeiðið er ætlað stjórnarmönnum, starfsfólki og þeim sem eru í háskólanámi fyrir talsmenn stéttarfélag.

Verð: 7.200 kr.                                          Námskeiðið er í Reykjavík

 

 

Til baka