Vaxtahækkanir og brotið traust – hver ber ábyrgð?
25 nóv. 2024
Íslenskt samfélag hefur á undanförnum mánuðum staðið saman í viðleitni til að ná niður verðbólgu og stuðla að efnahagslegum stöðugleika. Launþegar hafa tekið á sig hógværar launahækkanir í nýgerðum kjarasamningum til að styðja við þetta markmið. Samkomulagið var gert í góðri trú um að allir aðilar samfélagsins myndu leggja sitt af mörkum.
Það eru því mikil vonbrigði að sjá hvernig bankar, þar á meðal Íslandsbanki, hafa ákveðið að hækka vexti á verðtryggðum lánum um allt að 0,3% á sama tíma og Seðlabanki Íslands lækkar stýrivexti um 0,5%. Þessar vaxtahækkanir hafa bein áhrif á afkomu fólks, heimilin í landinu og grafa undan því trausti sem byggt var upp í tengslum við kjarasamninga.
Þegar launþegar samþykktu hóflegar launahækkanir gerðu þeir það með væntingum um að það myndi skila sér í minni verðbólgu, lægri vaxtakjörum og stöðugri efnahag. Með ákvörðun Íslandsbanka um vaxtahækkanir hefur skapast rof í þetta samfélagslega traust. Bankinn rökstyður vaxtahækkun sína með því að vísa í aukinn fjármögnunarkostnað, en staðreyndin er sú að vaxtahækkun þýðir aukna greiðslubyrði fyrir lántakendur. Og á sama tíma halda bankarnir áfram að skila milljarða hagnaði ár eftir ár. Það er erfitt fyrir okkur, sem höfum tekið virkan þátt í því samfélagslega átaki að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, að skilja hvernig þessar aðgerðir samræmast samfélagslegri ábyrgð.
Hvað þýðir þetta fyrir samstöðuna?
Það er mikilvægt að átta sig á samfélagslegu áhrifum þessara vaxtahækkana. Þegar einn aðili, í þessu tilfelli bankarnir, taka hagsmuni sína á kostnað samfélagsins, sendir það skilaboð um að samvinna og samfélagsleg ábyrgð sé einhliða. Þetta grefur undan trausti og skapar tortryggni sem getur haft áhrif á framtíðarviðræður um kjarasamninga.
Það er alþekkt að vaxtahækkanir íbúðarlána bitna sérstaklega á þeim sem hafa takmarkað svigrúm til að mæta aukinni greiðslubyrði, eins og hjá félagsfólki mínu og öðrum láglaunastéttum. Margir sjúkraliðar upplifa sig svikna, því þeirra framlag til stöðugleikans virðist ekki vera skila tilætluðum árangri.
Bankar bera ekki einungis ábyrgð gagnvart hluthöfum sínum, heldur líka samfélaginu sem þeir starfa í. Það er því brýnt að bankar endurmeti vaxtastefnu sína og tryggi að ákvarðanir þeirra séu í samræmi við þau markmið sem sett hafa verið um efnahagslegan stöðugleika í íslensku samfélagi.
Krafa okkar er sú að bankarnir sýni samfélagslega ábyrgð og endurskoði vaxtabreytingar sem styðja ekki við efnahagslegt jafnvægi. Að öðrum kosti gætu þessar ákvarðanir haft víðtækari afleiðingar fyrir samstöðu og traust í samfélaginu. Eftir því sem bankarnir sækja áfram í aukinn hagnað á kostnað almennings, verða samtök launþega að standa vörð um hagsmuni sinna félagsmanna. Það er mikilvægt að þessi umræða fari fram og að almenningur fái skýra mynd af því hvernig bankarnir bera sig að við ákvarðanir sem hafa áhrif á samfélagið í heild.
Grein Söndru B. Franks var fyrst birt á visir.is