Fréttir

Til hamingju með 1. maí

1 maí. 2025

1. maí er dagur verkafólks, dagur sem minnir okkur á þann árangur sem náðst hefur með samstöðu, bætt kaup og kjör, aukin réttindi og mannsæmandi vinnuaðstæður. Með baráttu hafa heilbrigðisstéttir, þar á meðal sjúkraliðar, unnið sér inn verðskuldaða virðingu og betri kjör, þó að enn sé verk að vinna.

Í ár er 1. maí sérstaklega tileinkaður konum og mikilvægu framlagi þeirra í atvinnulífi og samfélagi. Á tímum þegar álag á heilbrigðisstarfsfólk vex og mönnunarvandi steðjar að, þurfum við öll að standa saman fyrir sterkara velferðarsamfélagi. Þá skiptir máli að minnast þeirrar verðmætasköpunar sem opinberir starfsmenn, en af þeim eru 70% konur, standa að.

Því til viðbótar verður lítið af verðmætasköpun á almenna markaðinum án framlags og vinnu opinbera geirans, hvort sem það er innan heilbrigðiskerfisins, skólanna, löggæslunnar eða stjórnkerfisins.

Í Reykjavík verður safnast saman í kröfugönguna á Skólavörðuholti kl. 13 en útifundurinn hefst kl. 14 á Ingólfstorgi. Að útifundi loknum býður BSRB gestum og gangandi í verkalýðskaffi að vanda á Grettisgötu 89 þar sem Kvennakór Reykjavíkur töfrar fram dýrindis veitingar.

Svæðisdeild höfuðborgarsvæðisins býður félagsmönnum upp á hamborgara og meðlæti fyrir kröfugönguna hér við félagsaðstöðuna okkar á Grensásvegi 16. Ég hvet alla sem tök hafa á að mæta, njóta samverunnar og hafa gaman saman.

Dagskrá víða um allt land má finna hér: https://1mai.is/

Hafnarfjörður
Samstöðutónleikar Verkalýðsfélagsins Hlífar og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar í Bæjarbíói kl: 14:00. 

  • Fram koma: Bríet, Diljá, Ragnheiður Gröndal og Guðmundur Pétursson
  • Bæjarbíó opnar kl. 13:00

Akranes
Verkalýðsfélag Akraness, VR, FIT, Kennarasamband Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands og Sameyki standa fyrir dagskrá á baráttudegi verkalýðsins 1. maí á Akranesi.

Kröfuganga frá Þjóðbraut 1. kl. 14:00. Trommusveit TOSKA undir stjórn Heiðrúnar Hámundar leiðir gönguna.

Hátíðar- og baráttufundur í sal eldri borgara Dalbraut 4 að lokinni kröfugöngu.

  • Ræðumaður: Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA
  • Tónlistaratriði: Kvennakórinn Ymur 
  • Veitingar að hætti kórfélaga að dagskrá lokinni
  • Biósýning fyrir börn. Bíóhöllin kl. 13:00 og kl. 16:00. Miðar á midix.is

Stykkishólmur
Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá á Fosshótel Stykkishólmi.

  • Dagskráin hefst kl. 13:30
  • Kynnir: Vignir Smári Maríasson formaður Vlf. Snæfellinga
  • Ræðumaður: Valmundur Valmundsson formaður SSÍ
  • Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Stykkishólms
  • Skemmtiatriði: Lalli töframaður
  • Fosshótel Stykkishólmi sér um kaffveitingar

Grundarfjörður
Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá í Samkomuhúsi Grundarfjarðar

  • Dagskráin hefst kl. 14:30
  • Kynnir: Sævör Þorvarðardóttir fulltrúi Sameykis stéttarfélags
  • Ræðumaður: Valmundur Valmundsson formaður SSÍ
  • Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Grundarfjarðar
  • Skemmtiatriði: Lalli töframaður
  • Kvenfélagið Gleym-mér-ei sér um kaffveitingar

Snæfellsbær
Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir dagskrá í Klifi.

  • Dagskráin hefst kl. 15:30
  • Kynnir: Vignir Smári Maríasson formaður Vlf. Snæfellinga
  • Ræðumaður: Valmundur Valmundsson formaður SSÍ
  • Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Snæfellsbæjar
  • Skemmtiatriði: Lalli töframaður
  • Félag eldri borgara í Snæfellsbæ sér um kaffiveitingar

Borgarnes
Stéttarfélag Vesturlands og Kjölur standa fyrir hátíðar- og baráttufundi sem hefst í Hjálmakletti, Borgarnesi kl. 14:00.

12:00 bíó fyrir yngstu kynslóðina í Óðal – popp og svali í boði.

  • Ávarp: Silja Eyrún Steingrímsdóttir, formaður Stéttarfélags Vesturlands 
  • Ræðumaður: Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdarstjóri Vörðu
  • Ávarp, atriði frá Tónlistarskólanum í Borgarnesi, Bjarni Freyr Gunnarsson tekur lagið. Ræðu dagsins flytur Aleksandra Leonardsdóttir. Einnig koma fram Barnakórarnir og Jón Jónsson.
  • Félögin bjóða samkomugestum upp á kaffihlaðborð að fundi loknum. Foreldrar og nemendur 9.bekkjar í Grunnskólans í Borgarnesi sjá um veitingar.
  • 12:00 bíó fyrir yngstu kynslóðina í Óðali – popp og svali í boði


Búðardalur
Baráttufundur í Dalabúð hefst kl. 14:30.

  • Ávarp dagsins flytur  Sólrún Ýr Guðbjartsdóttir, kennari í Auðarskóla
  • Kynnir: Þóra Sonja Helgadóttir, verkefnastjóri Kjalar í Stykkishólmi
  • Tónlistaratriði frá Tónlistarskóla Auðarskóla
  • Þorrakórinn tekur lagið
  • Kaffihlaðborð að fundi loknum. Skátafélagið Stígandi sér um veitingar í umsjón Katrínar Lilju

Ísafjörður
Lagt verður af stað frá Alþýðuhúsinu kl. 14:00 með Lúðrasveit Tónlistarskóla Ísafjarðar í fararbroddi

  • Hátíðardagskrá í Edinborg
  • Ræðumaður dagsins: Bergvin Eyþórsson
  • Tónlistaratriði: Fagranesið tekur nokkur lög og barnakór Tónlistarskólans 3. til 4. bekkur syngur.
  • Pistill dagsins: Lísbet Harðar Ólafardóttir
  • Maraþonmenn tala lagið
  • Slysavarnardeildin Iðunn sér um kaffiveitingar í Guðmundarbúð að lokinni dagskrá í Edinborgarhúsinu.
  • Bíó fyrir börn í Ísafjarðarbíói kl. 14:00 og kl. 16:00 – 10 líf
  • Bíó fyrir eldri í Ísafjarðarbíói kl. 20:00 – The Fall Guy

Akureyri
Kröfuganga og hátíðardagskrá á Akureyri miðvikudaginn 1. maí

  • 13:45 – Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
  • 14:00 – Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar

Hátíðardagskrá í Hofi að lokinni kröfugöngu

  • Kynnir er Anna Júlíusdóttir, formaður Einingar-Iðju
  • Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna, Guðmundur Helgi Þórarinsson, formaður VM
  • Hátíðarræða, Finnbjörn A. Hermannsson – forseti ASÍ
  • Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum um Gosa
  • Ívar Helgason tekur lagið
  • Kaffihressing að dagskrá lokinni
  • Pylsur, safi og andlitsmálning fyrir börnin.

Húsavík
Stéttarfélögin standa fyrir hátíðarhöldum 1. maí á Fosshótel Húsavík. Hátíðin hefst kl. 14:00. Boðið verður upp á veglegt kaffihlaðborð frá hótelinu, hátíðarræða, auk þess sem heimamenn í bland við góða gesti munu sjá um að skemmta gefstum með mögnuðum tónlistaratriðum.

  • Ruth Ragnarsdóttir syngur Maístjörnuna við undirleik Ísaks M. Aðalsteinssonar
  • Hátíðarræða: Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags
  • Tónsmiðjan spilar og syngur nokkur lög
  • Nemendur Tónlistarskóla Húsavíkur flytja tónlist
  • Ávarp: Ósk Helgadóttir, varaformaður Framsýnar stéttarfélags
  • Geirmundarsveifla: Flytjendur Jónína Björt Gunnarsdóttir, Guðrún Arngrímsdóttir, Maja Eir Kristinsdóttir, Pétur Valgarð Pétursson og Grétar Örvarsson

Vopnafjörður
Félagsheimilinu Miklagarði – Gunnar Smári Guðmundsson flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Borgarfjörður eystri
Álfheimum – Lilja Björk Ívarsdóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Seyðisfjörður
Félagsheimilinu Herðubreið – Kristján Eggert Guðjónsson flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Egilsstaðir
Hótel Héraði – María Von Pálsdóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Reyðarfjörður
Heiðarbær – Eygló Halla Ingvadóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Eskifjörður
Melbær- Jón Kristinn Arngrímsson flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Neskaupstaður
Hótel Hildibrand- Ásdís Helga Jóhannsdóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Fáskrúðsfjörður
Glaðheimum –Pálína Margeirsdóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Stöðvarfjörður
Grunnskólanum Stöðvarfirði – Sverrir Kristján Einarsson flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Breiðdalsvík
Hamar kaffihús – Guðný Harðadóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Djúpivogur
Hótel Framtíð – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Hornafjörður
Heppa restaurant – Guðrún Ingimundardóttir flytur ávarp

  • Boðið verður upp á súpu undir ávarpi félagsins sem fara fram á milli kl. 12:00 og 13:00.

Selfoss
Kröfuganga hefst klukkan 11:00.
Lúðrasveit Selfoss og Hestamannafélagið Sleipnir leiða kröfugöngu frá Austurvegi 56 að Hótel Selfossi þar sem dagskrá og skemmtun fer fram.

  • Kynnir: Helga Kolbeinsdóttir frá FOSS
  • Ræðumaður: Halla Gunnarsdóttir, formaður VR
  • Ræða námsmanns: María Friðmey Jónsdóttir, FSU
  • Tónlistaratriði: Júlí og Dísa taka lagið
  • Leikfélag Hveragerðis með lög úr Ávaxtakörfunni
  • Fimleikadeildin sér um andlitsmálun
  • Kaffi og veitingar

Hella
Opið hús VLFS 13:00 – 15:00. 
Allir velkomnir

  • Kynnir: Guðrún Elín Pálsdóttir
  • Ávarp: Björg Bjarnadóttir, framkvæmdastýra SGS
  • Tónlist: Fríða Hansen og Alexander Freyr
  • Kvenfélagið Unnur sér um veitingar
  • Blöðrur og sleikjó fyrir börnin
  • 3. hæð í Miðjunni, Hellu

Reykjanesbær
Á þessum degi fögnum við því sem áunnist hefur í réttindabaráttu verkafólks og óskum öllum til hamingju með daginn. Í tilefni að 50 ára afmæli frá kvennafrídegi munu konur vera áberandi í dagskrá baráttufundarins.

Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félags- fólki og öðrum íbúum svæðisins á baráttu- fund í Stapa, Hljómahöll kl.14:00 til 16:00. Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

  • Húsið opnar kl. 14 og tekur lúðrasveit tónlistarskóla Reykjanesbæjar á móti fólki.
  • Kynnir: Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK
  • Ræðurmaður dagsins: Helga Margrét Jóhannesdóttir yfirhjúkrunarfræðingur
    og Birgitta H Halldórsdóttir rithöfundur.
  • Tónlistaratriði: Fríða Dís tekur nokkur vel valin lög.
  • Leikfélag Keflavíkur kemur með innslag og Kvennakór Suðurnesja slær botn í dagskrána.

Blönduós
Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi.

Afþreying fyrir börn,

Dagskráin hefst kl. 14:00
Ræðumenn dagsins: Helga Margrét Jóhannesdóttir yfirhjúkrunarfræðingur og Birgitta H Halldórsdóttir rithöfundur.

Við hvetjum öll til að fjölmenna í kröfugöngurnar um allt land. Sýnum samstöðu, styrk og þakklæti með nærveru okkar. Áfram verkafólk!

Til baka