Spennandi námskeið hjá Framvegis
26 feb. 2013
Vannæring hjá öldruðum og langveikum – lærðu að greina, fyrirbyggja og meðhöndla-Einnig fjarkennt NÝTT
Þar sem fullbókað er á fyrra námskeiðið og færri komust að en vildu höfum við ákveðið að bæta við öðru námskeiði 29. og 30. apríl. Námskeiðið verður með sama hætti og það fyrra, kennt í Skeifunni 11b en einnig fjarkennt.
Á námskeiðinu verður fjallað um hvernig næringarástand einstaklingsins hefur áhrif á lífslíkur og árangur meðferðar. Markmið námskeiðsins er að sjúkraliðar þekki leiðir til að koma í veg fyrir vannæringu og að greina einstaklinga í áhættu að fá vannæringu.
Leiðbeinandi: Ólöf Guðný Geirsdóttir, næringarfræðingur á LSH og doktorsnemi í næringarfræði. Námskeiðið er einnig sent út í fjarkennslu, nánari upplýsingar um fjarkennslu er að finna hér. Skráning á heimasíðu Framvegishér