Ráðherra úthlutaði styrkjum vegna nema í starfsþjálfun
31 okt. 2011
31.10.2011
![Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra fyrr í dag Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra fyrr í dag](https://www.bsrb.is/files/Katr%C3%ADn%20Jakobsd%C3%B3ttir,%20mennta-%20og%20menningarm%C3%A1lar%C3%A1%C3%B0herra%20fyrr%20%C3%AD%20dag_1389776425.jpg)
Stutt samkoma var haldin af þessu tilefni í dag þar sem Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hélt ræðu þar sem m.a. kom fram að 65 umsóknir bárust um framangreinda styrki frá fyrirtækjum og stofnunum að þessu sinni. Alls verður hægt að úthluta 57 milljónum króna í styrki til umsækjenda í þessari lotu og njóta um 170 nemendur góðs af.
Í ár eru styrkirnir veittir af mennta- og menningarmálaráðuneytinu en á næsta ári verður stofnaður sérstakur vinnustaðanámssjóður um þetta málefni og þannig á að koma til móts við kostnað fyrirtækja og stofnana sem annast kennslu eða þjálfun starfsnámsnemenda. Á árunum 2012-2014 verður alls 450 milljónum króna varið til verkefnisins.
Formaður BSRB tók einnig til máls á samkomunni og óskaði Elín Björg öllum hlutaðeigandi hjartanlega til hamingju með áfangann enda mun framtakið gera mun fleiri nemendum en ella kleift að komast að í starfsnámi. Þá vill BSRB sérstaklega benda á úthlutunarreglur styrkja til vinnustaðanáms og hvetur bandalagið alla til að kynna sér málið og hvort þeir geti ekki nýtt sér sjóðinn til að taka við nemendum í starfsþjálfun á sínum vinnustað. Fyrirtæki og stofnanir sem taka nema í vinnustaðarnám geta sótt um 20 þúsund á viku fyrir hvern nema í allt að 24 vikur á ári.