Fréttir

Páskakveðja frá formanni

17 apr. 2025

Kæru sjúkraliðar!
Páskarnir eru að koma, og við hjá Sjúkraliðafélaginu viljum senda ykkur hlýjar og kærleikskveðjur!
Þið, kæru sjúkraliðar, takið stöðuna af öryggi og eldmóði, dag eftir dag, allt árið um kring. Það eruð þið sem tryggið að heilbrigðis- og velferðarþjónustan gangi upp, oft við krefjandi aðstæður, en ávallt af samviskusemi og nærgætni. 
Það er okkur bæði heiður og skylt að minna á hversu ómetanlegt framlag ykkar er. Vonandi ná sem flest ykkar að njóta hátíðarinnar, hvort sem það er með fjölskyldunni, úti í náttúrunni eða með góðu páskaeggi og smá hvíld. 
Skrifstofa félagsins verður lokuð yfir páskana þar sem starfsfólkið okkar nýtur frídaga, en við vitum að á sama tíma standið þið sjúkraliðar áfram vaktina. 
Gleðilega páska, kæru félagar – og áfram sjúkraliðar!
Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands

Til baka