Kynning á kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu
12 jan. 2016
Föstudaginn 15. janúar, kl.15:30 verður nýgerður kjarasamningur Sjúkraliðafélags Íslands við Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu kynntur í félagsaðstöðu okkar að Grensásvegi 16.
Samningurinn verður sendur á trúnaðarmenn utan suðvesturhornsins með útskýringum og eru þeir beðnir um að kynna hann fyrir sjúkraliðum.
Trúnaðarmenn geta hringt á skrifstofu félagsins ef þeir óska eftir nánari útlistun á samningnum.
Að lokinni kynningu hefst atkvæðagreiðsla um samninginn á heimasíðu félagsins.
Kjaramálanefnd SLFÍ