Fréttir

Kjarasamningur við ríkissjóð samþykktur

11 júl. 2024

Í dag lauk atkvæðagreiðslu á nýgerðum kjarasamningi Sjúkraliðafélags Íslands við fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs og var hann samþykktur með meirihluta greiddra atkvæða. Samningurinn gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028.

Sam­kvæmt þessum nýja samningi munu mánaðar­laun hækka um að lág­marki 23.750 krónur eða 3,25% á mánuði og verða launahækkanir til útborgunar um næstu mánaðarmót, afturvirkt frá 1. apríl 2024. Þá var 0,7% af kostnaðarmati kjarasamningsins sett á launaflokka í töflu þannig að laun sjúkraliða munu hækka um rúmlega 18% á samningstímanum, eða frá 95.000 kr. til 130.000 kr. á launaflokk.  Þá munu laun sjúkraliða fylgja launaþróun á almennum markaði. Desem­ber­- og orlofsuppbætur munu einnig hækka einnig á milli ára.

Til viðbótar við þetta náðist samkomulag um að breyta reiknireglu vaktahvatans sem leiðir til þess að minni launasveiflur verða á milli mánaða. Einnig var gert samkomulag um að bæta viðverukerfin og fara í
fræðsluátak varðandi notkun og nýtingu kerfanna enda mikilvægt að auka gagnsæi á fyrirkomulagi vaktskrár og vaktahvatanum.

Þá náðist einnig samkomulag um að tryggja stöðu sjúkraliða í helbrigðiskerfinu enn betur og þá einkum sjúkraliða með diplómaprófi. Samhliða þessum kjarasamningi samþykkti heilbrigðisráðherra breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Reglugerðarbreytingin felur í sér viðurkenningu á viðbótarmenntun sjúkraliða við Háskólann á Akureyti sem gerir þeim kleyft að takast á við flóknari verkefni og takast á hendur aukna ábyrgð í stöfum sínum. Kjarasamninginn má lesa hér: 

Kjarasamningur Sjúkraliðafélags Íslands og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs

Til baka