Opnað fyrir sölu í gönguferð í Kerlingarfjöllum
11 mar. 2024
Gönguferð innanlands SLFÍ í Kerlingarfjöllum dagana 11.-15. júlí 2024.
Ferðin kostar 70.000 kr. á mann (fullt verð 100.000 kr).
Opnað verður fyrir sölu á orlofsvef SLFÍ 17. apríl kl:13:00
Kerlingarfjöll á Kili eru á miðju hálendi Íslands. Í Kerlingarfjöllum er fjölbreytt landslag á litlu svæði, tignarleg fjöll, jöklar, hverasvæði, gljúfur og dalverpi.
Hin árlega innanlandsferð Sjúkraliðafélags Íslands verður að þessu sinni í Kerlingarfjöllum. Hámarksfjöldi í ferðina eru 19 einstaklingar. Gist verður í svefnpokagistingu í fjórar nætur (gist í skálum fyrir 15 manns og 6 manns). Gengið verður í þrjá daga um þetta magnaða svæði. Skipt verður í matarhópa sem eldar sameiginlegar máltíðir.
Dagskrá ferðar:
- Dagur 1: Lagt af stað frá skrifstofu SLFÍ að Grensásvegi með rútu kl: 9:00. Ekið í Kerlingarfjöll með viðkomu á Gullfossi.
- Dagur 2: Hringur í Neðri Hveradölum, gengið 12-14 km og 500 m hækkun.
- Dagur 3: Ásgarðsfjall, Keis og Ásgarðsgljúfur, gengið 10-12 km og 300 m hækkun.
- Dagur 4: Kerlingin klukkuð gengið 14 -16 km og 400 m hækkun.
- Dagur 5: Heimferð kl: 11:00.
Innifalið í ferðinni:
- Akstur fram og til baka í Kerlingarfjöll
- Svefnpokagisting
- Fararstjórn og gönguleiðsögn
Það sem þarf að hafa meðferðis:
- Bakpoka
- Regngalli
- Legghlífar
- Auka peysa
- Húfa
- Sólgleraugu
- Vatnsflaska, hitabrúsi, bolli
- Nesti fyrir tvö nestisstopp
- Smávegis nasl (orkugefandi)
- Göngustafi
- Flugnanet
- Sundfatnað
- Vaðskór
- Sólarvörn