Ársskýrsla Vestfjarðadeildar 2024

Aðalfundur Vestfjarðadeildar var haldin 21. nóvember 2024 á Bubblýs Ísafirði. Það var mjög góð mæting og komu 17 sjúkraliðar. Boðið var uppá smárétti og gos.

Evrópudagur sjúkraliða er þann 26. nóvember og þá bauð stjórnin upp á gjafakörfu á deildar með ýmsum sjúkraliðavarningi sem vakti mikla lukku.

Formaður fór á félagstjórnarfundi, fulltrúaþing og á trúnaðarmannaráðstefnu ásamt varaformanni. Formaður mætti einnig á BSRB þing, 2 – 4. október sem var haldið á Hilton Nordica sem var mjög fræðandi og skemmtilegt.

Glæsilegur hópur sjúkraliða útskrifuðust frá Menntaskólanum á Ísafirði.
Þrír sjúkraliðar útskrifuðust 25. maí 2024 og sex sjúkraliðar 20. desember 2024. Deildin færði þeim rósir og sjúkraliðalykla.

Í stjórn Vestfjarðadeildar sitja,
Linda Björk Wolff Óskarsdóttir, formaður
Sólveig Sigríður Guðnadóttir, varaformaður
Þórdís Guðmundsdóttir, ritari
Marý Karlsdóttir, gjaldkeri
Ingibjörg Heba Halldórsdóttir,  meðstjórnandi

Stjórnin hittist fimm sinnum á staðfundi í skipulagningu viðburða.

Stjórnin þakkar fyrir liðið ár,
Linda Björk Wolff Óskarsdóttir, formaður Vestfjarðadeildar

Til baka