Ráðstefna í tilefni af 50 ára afmæli Sjúkraliðafélags Íslands
4 okt. 2016
Í tilefni af hálfrar aldar afmæli Sjúkraliðafélags Íslands verður staðið að ráðstefnu föstudaginn 18. nóvember kl.13.00 -16.15 á Hótel Natura.
Eftir ráðstefnuna verður opið hús þar sem félagið mun bjóða upp á léttar veitingar.
Vonast er til að sem flestir sjái sér fært um að mæta og taki daginn frá.
Opnað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 5.október.
Hægt verður að skrá sig á vefnum, senda tölvupóst á sigga@slfi.is , lilja@slfi.is og sigurlaug@slfi.is eða skrá sig símleiðis í s. 553-9494.