Fréttir slfi
Starfatorg/dagvinna
	<description>Hlíðabær óskar eftir sjúkraliða. Sjá nánar á starfatorgi.</description>
Nýtt á starfatorgi
	<description>Sjá auglýsingu</description>
Fundir um kjaramál
	<description>Fundur með ríkissáttasemjara og fulltrúum ríkisins lauk nú á tólfta tímanum í dag. 
Engar breytingar eru á viðhorfi fjármálaráðuneytisins í viðræðum við Sjúkraliðafélagið. Fundi var slitið og nýr fundur ekki boðaður að svo stöddu. 
Kjaramálanefnd félagsins boðar trúnaðarmenn sjúkraliða hjá ríksstofnunum til funda að Grettisgötu 89. í Reykjavík 7. september nk. kl. 16:00. Nánar auglýst síðar. 
Einnig er boðað til almenns félagsfundar með sjúkraliðum sem starfa hjá ríki. Fundurinn verður haldinn 13. sept. nk. að Grettisgötu 89, Reykjavík kl. 16:00</description>
Hver hugsar um þig?
	<description>Deild sjúkraliða á Norðurlandi eystra heldur málþing 
laugardaginn 25. sept. kl:16:00.
Staður: Lions salur, Skipagata 14, 3. hæð.
Sjá auglýsingu á deildarfréttum</description>
Vika á Eiðum var að losna
	<description>Vegna forfalla var orlofshúsið á Eiðum að losna vikuna 20. – 27. ágúst.
Verð 15.500 kr. Fyrstur bókar, fyrstur fær.
Upplagt að nýta sér aðalbláberjasprettuna</description>
Ríkissáttasemjari boðar til fundar
	<description>Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara þriðjudaginn 24. ágúst og verður fundurinn haldinn kl. 10:30</description>
Vatnsleysið í Úthlíð
	<description>Orkuveita Reykjavíkur hefur gert samning við Bláskógaveitu um að tengjast vatnsveitu Úthlíðar til að bregðast við vatnsskorti vegna lágrar vatnsstöðu í lind sem Úthlíðarveitan sækir vatn til. 
Félagið hefur verið í sambandi við lögfræðing orkuveitunnar. Hjá honum kom fram að unnið sé að samtengingu veitnanna og er áformað að því verki ljúki á næstu dögum.
Ástæðuna segja þeir vera tvíþættar. Skýringin er annars vegar sú að síðasti vetur var afar snjóléttur og því á litlum forða að byggja fyrir kaldavatnslindina í Bjarnarfelli sem er</description>
Skráning á trúnaðarmannanámskeið í haust hafin
	<description>Skráning á trúnaðarmannanámskeið BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu í haust er hafin. Námskeiðið er í 6 þrepum eins og verið hefur og stendur hvert þrep í þrjá daga. Hægt er að taka eitt þrep eða fleiri, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum. 1. þrep er dagana 14. til 16. september. 2. þrepið er dagana 20. til 22. september og síðan koll af kolli vikulega þar til 6. þrepið sem stendur einungis í tvo daga er 18. og 19. október. Skráning fer fram í gegnum heimasíðu BSRB hér . Trúnaðarmenn skrái sig í samráði við sitt stéttarfélag.</description>
Orlofshús
	<description>Vegna forfalla var orlofshúsið okkar á Eiðum að losna vikuna 13.-20. ágúst. 
Einnig er íbúðin á Akureyri laus 28. ágúst til 3. sept. Sjá http://www.orlof.is/slfi/site/rent/rent_list.php</description>
Ferðahelgi ársins
	<description>Kæru sjúkraliðar, um leið og við óskum ykkur góðrar ferðar um verslunarmannahelgina, minnum við ykkur á að aka varlega, ganga hægt um gleðinnar dyr og síðast en ekki síst að njóta samvista við hvort annað.  Spakmæli helgarinnar eru „Hamingjan er ekki fólgin í því að gera það sem þú hefur ánægju af, heldur að hafa ánægju af því sem þú gerir! “
Kær kveðja starfsfólk Sjúkraliðafélags Íslands</description>
Stuðningsyfirlýsing Sjúkraliðafélags Íslands við kjarabaráttu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
	<description>Sjúkraliðafélag Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fyrir leiðréttingu á launakjörum sínum. Kjarabarátta þeirra snýst um að störf vaktavinnufólk verði metin í samræmi við álag og ábyrgð. Kjarabarátta slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna er barátta fyrir sanngjörnu mati á störfum fólks sem vinnur  afbrigðilegan vinnutíma undir miklu álagi að aukinni velferð landsmanna. Sjúkraliðafélag Íslands skorar á forystumenn Samtaka sveitarfélaga að sýna kjark, drengskap og fyrirhyggju og ganga nú þegar að kröfum slökkviliðsmanna.</description>
Síðustu forvöð, Landmannalaugar og Fjallabaksleið syðri
	<description>Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í ferð sem sjúkraliðum stendur til boða um Landmannalaugar og Fjallabaksleið syðri dagana 6.-9. ágúst nk. Ferðin er við allra hæfi og kostar 35 þúsund krónur á manninn. Innifalið er gisting, ferðir og leiðsögn. Skráning í síma 863-9471 eða á netfangið gunnaro@slfi.is  Síðasti skráningardagur ....</description>
Þrjú námskeið í samstarfi við námsbraut í fötlunarfræðum við HÍ
	<description>Sjálfstætt líf og notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) 
Skráningarfrestur er til 17. september.
Fötlunarfræði: Helstu hugtök og sjónarhorn
Skráningarfrestur er til 4. október.
Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Skráningarfrestur er til 12. nóvember.
Nánari upplýsingar í síma 525 4444</description>
Trúnaðarmannanámskeið
Hjallatún - sjúkraliðastarf
	<description>Hjallatún – dvalar og hjúkrunarheimili í Vík 
Okkur vantar sjúkraliða til starfa frá 1. september nk.  Á Hjallatúni búa 18 einstaklingar í afar heimilislegu umhverfi. Starfið er vaktavinna og starfshlutfall samkomulagsatriði. 
Áhugasamir hafi samband við Guðlaugu hjúkrunarforstjóra í s. 868-1181.</description>
Fundur með heilbrigðisráðherra
	<description>Frá hægri: Gunnar Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri SLFÍ,   
Kristín Á, Guðmundsdóttir, formaður SLFÍ, Sveinn Magnússon, yfirlæknir, Bryndís Þorvaldsdóttir, sérfræðingur, Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra og Dagný Brynjólfsdóttir, deildarstjóri
Heilbrigðisráðherra frú Álfheiður Ingadóttir tók á móti fulltrúum félagsins 24. júní, en Sjúkraliðafélag Íslands hafði óskað eftir fundi  með henni um stöðu mála á barnasviði Landsspítala. Fram kom í máli ráðherra að hún hefði áhyggjur af stöðu sjúkraliða innan heilbrigðiskerfisins í heild. Samkvæmt upplýsingum ráðuneytisins hefur stöðum sjúkraliða innan heilbrigðiskerfisins fækkað um 7,5% og meðallaun lækkað um 10,3%. Á sama tíma hefur stöðum hjúkrunarfræðinga ekki fækkað nema um 2,5% og meðallaun lækkað um 9,7%. Hækkanir hafa aftur á móti orðið vegna fjölgunar álagsvakta hjá hjúkrunarfræðingum. Stöðum lækna hefur fækkað um 6,2% og meðallaun lækkað um 8,4%.
Þetta segir hún að sé ekki í samræmi við þá tilskipun sem gefin var út til stjórnenda heilbrigðisstofnana um að jafna ætti kjör heilbrigðisstarfsmanna til þess að ná fram sparnaði innan heilbrigðisþjónustunnar. Ekki að þeir sem lægstu launin hefðu væru láttnir lækka mest.</description>
Orlofshús LL á Eiðum
	<description>Orlofshús LL á Eiðum er laust nú næstu viku 18. – 25. júní.  Áhugasamir hafi samband  Landsamband lögreglumanna 
Hringið í Stefaníu hjá LL
sími 520-8360</description>
Orlofsaðstaða að Eiðum tekur stakkaskiptum
	<description>Starfslokahátíð var haldin á Eiðum í tilefni af því að undanfarnar vikur hafa orlofshúsin að Eiðum tekið miklum stakkaskiptum. Búið er að leggja malbikaðan veg heim að orlofshúsahverfinu. Nýjir pallar hafa verið smíðaðir við húsin og innviðir endurnýjaðir. Misjafnt er hve mikið hefur verið lagt í innanhúsbreytingar og eru nokkur félög búin að taka bústaðina til gagngerrar endurnýjunar.  
Orlofshús Sjúkraliðafélags Íslands að Eiðum 
 Klikkið á meira og sjáið fleirri myndir</description>
Viðræður báru engan árangur
	<description>Fundað var hjá ríkissáttasemjara í gær 10. júní með fulltrúum fjármálaráðherra. Farið var yfir stöðuna eins og hún liggur fyrir. Sjúkraliðar bentu enn og aftur á þann mismun sem skapast hefur á milli stétta. Einnig lögðu sjúkraliðar til grundvallar nýgenginn gerðadóm í máli lögreglumanna þar sem þeim voru dæmdar álagsgreiðslur. 
Ríkissáttasemjari sér ekki ástæðu til að kallað verði til fundar fyrr en í fyrstu viku ágúst nk. Ljóst er orðið að haustið verður tími mikils óróa á vinnumarkaði opinberra starfsmanna, þar sem enn eiga ólokið kjarasamningum auk sjúkraliða BHM félögin, KÍ, hjúkrunarfræðingar, tollverðir, slökkviliðsmenn ofl.</description>
Fundur Kjaramálanefndar Sjúkraliðafélags Íslands, haldinn 9. júní 2010 ályktar
	<description>Innan BSRB eru 20.000 félagsmenn og þar af eru um 14.000 konur. 
Að stærstum hluta eru konur innan BSRB láglaunahópur sem starfa við þjónustu við sjúka, fatlaða, öryrkja og aldraða. Félagsmenn Sjúkraliðafélags Íslands eru þar ekkert undanskildir. 
Byrjunarlaun sjúkraliða hjá ríkinu eru 201.200 krónur eftir rúmlega þriggja ára nám á framhaldsskólastigi. Laun almenns sjúkraliða ná ekki að hækka meir en 50.000 k. eftir margra ára starfsaldur. 
Á meðan hægri hönd félagsmálaráðherra skrifar upp á að   farið sé í byggingu stórhýsa, m.a.  byggingu nýs sjúkrahúss og hjúkrunarheimila og skapa með því hefðbundin karlastörf , skrifar sú vinstri undir yfirlýsingu um að  konur í opinberum störfum, þar á meðal sjúkraliðar, greiði það með frystingu launa og gríðarlegri kjaraskerðingu. Ekki leggst nú mikið fyrir kappann . 
Opinberir starfsmenn hafa nú þegar tekið á sig verulega kjaraskerðingu og sýnt í verki skilning sinn á þeirri erfiðu stöðu sem samfélagið er í. 
Með yfirlýsingu sinni lýsir félagsmálaráðherra opinberum kvennastéttum stríð á hendur og gengur gegn þeim mikla samstarfsvilja sem sýndur hefur verið.
Sjúkraliðafélag Íslands hefur verið með lausa samninga í 14 mánuði án þess að nokkuð hafi þokast í samningsátt. Kjaramálanefnd Sjúkraliðafélagsins krefst þess að sú launafrysting sem verið hefur verði aflétt og nú þegar verði samið við félagið. 
Fyrir hönd Kjaramálanefndar Sjúkraliðafélags Íslands 
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður</description>